Heildarlausnir í viðhalds- og þjónustusamningum

Rafþekking ehf býður heildarlausnir í viðhalds- og þjónustusamningum fyrir fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Við sérhæfum okkur í reglubundnu eftirliti og viðhaldi á loftræstikerfum, neyðarljósum, gufu- og saunaofnum sem og raf- og tölvulögnum. Þjónustusamningar okkar tryggja áreiðanlegan rekstur kerfa þinna. Hafðu samband til að fá sérsniðna lausn fyrir þitt húsfélag eða fyrirtæki.